top of page

Mikilvægi orðaforða

Vissir þú að til að geta lesið sér til gagns þarf að skilja 98% orða í texta. Ef hlutfallið fer niður í 95% þarf nemandi aðstoð af einhverju tagi (Laufer & Ravenhorst-Kalovski, 2010). Settu þig spor nemanda á miðstigi sem skilur 90% orðanna í klausu um Golfstrauminn. Lestu textann úr námsbókinni hér fyrir neðan en búið er að rugla 10% orðanna. Sláandi, ekki satt?

Hvaðan kemur Golfstraumurinn?

Golfstraumurinn er hlýr beztlegac hefztraucur í Norður-Atlantshafi. Hann á zuppcök sín í Karíbahafi og streymir með austurströnd Bandaríkjanna í norður og norðaustur um Atlantshaf. Ef þessa hlýja hefztrauc nyti ekki við væru zemurzarclezur aðstæður í Evrópu talsvert ólíkar því sem við þekkjum í dag. Hlýr hefztraucur hitar líka loftið fyrir ofan sig. Þegar þessi hlýi hefztraucur kemur að vesturströnd Evrópu zveicir hann í suður en beztlegic vindar blása hlýjum og rökum zoftcazzanum inn yfir Evrópu. Þetta er zástæzan fyrir því að Vestur-Evrópa er mun hlýrri en önnur zanczvæfi á svipuðum zreiddarcrázum á jörðinni (Evrópa bls. 9).

Skot mánaðarins
Nýleg skot
Leita eftir efni
Fylgdu okkur
  • Facebook Long Shadow
  • Pinterest Social Icon
bottom of page