Stoðir
Að nota stoðir (e. scaffolding) í námi auðveldar nemendum að tileinka sér nýja færni og/eða ný orð. Myndin sýnir hvernig dót er notað sem sjónræn stoð til að auðvelda nemendum að læra orð og málfræði. Það er gert með því að:
· Draga hlut úr poka og læra heiti hans í eintölu og fleirtölu.
· Draga tvo hluti og velta fyrir sér hvað er líkt og ólíkt svo sem litur, lögun og úr hverju hlutirnir eru búnir til.
· Draga hlut og finna með fingrunum hvort hann er sléttur eða hrjúfur.
コメント