

PWIM - Picture Word Inductive Method
Ertu að leita að áhrifaríkri leið til að efla orðaforða? Notaðu myndir sem tengjast efninu sem á að fjalla um. PWIM er m.a. hægt að nota til að þjálfa nemendur í málfræði, stafsetningu, málnotkun, framburði, íslenska hljóðkerfinu og til þess að efla orðaforða þeirra. Aðferðinni er gerð góð skil hér og hér.


Sjónrænar stoðir - unnið með almennan orðaforða af þrepi eitt
Takið frá fimm mínútur til að fara yfir daginn með nemendum ykkar og spyrjið: Hvaða dagur er í dag, en í fyrradag, hvaða mánuður er núna, hvernig er veðrið núna? Með daglegri endurtekningu festast orðin og viðeigandi notkun þeirra í minni. Hér má nálgast skjalið. Hér er útskýring á þrepaskiptingu orðaforða.

Hagnýtar hugmyndir
Fylgdu Fræðsluskotum á Pinterest. Fáðu innblástur!