

Orðaþrenna vikunnar
Stærð orðaforða og lesskilningur fara saman. Orðaþrenna vikunnar er verkefni sem hefur það að markmiði að auðga orðaforða allra nemenda í einum grunnskóla samtímis. Þrjú orð eru tekin fyrir vikulega í fjórar vikur í senn og eru kennarar og starfsmenn skólans hvattir til að taka þátt í verkefninu. Í fimmtu hverri viku er upprifjun á orðum síðustu fjögurra vikna. Orðin sem valin eru eiga það sameiginlegt að heyrast ekki oft í daglegu tali en eru algeng í lesmáli. Þau eru af öðr